Sunday, November 30, 2014

Aðventukrans / Advent Candles

Fyrsti í aðventu í dag og langaði mig að sýna ykkur aðventu"kransinn" minn :)

Sá svipaða mynd á Pinterestinu um daginn og bara varð að gera mína útfærslu á svona kransi.  Ég elska að nota það sem til fellur í nátturinni.  Ég sendi kallinn út í garð og fann hann eina væna birkigrein sem var að klofna frá aðaltrénu og felldi hann hana.  Svo sagaði hann hana bara í passlega lengd, heflaði aðeins undir greinina þannig að hún situr vel á borði.  Síðan gerði hann 4 göt fyrir kertin.

Svo fann ég til smá greni, litla köngla og rauð ber sem ég átti og skreytti hann smá :)

Er bara nokkuð ánægð með hann :)

Minni svo á jólamyndadagatalið mitt sem byrja á morgun !!!





This is my advent candles this year.  I just love using natural material and something you can collect in your garden...and that is what we did :)

And my Christmas calendar starts tomorrow :)

Kristín



Monday, November 24, 2014

It´s almost Calander time !!!

Já, nú fer að styttast í jóladagatalið mitt sem hefst 1.desember :)  




Er á fullu að undirbúa, byrjuð að taka einhverjar myndir en bíð svo eftir fallega jólasnjónum til að geta klárað :)

Hérna er svo lítið myndband sem ég bjó til með myndunum í jóladagatalinu í fyrra.  Vona að þið hafið gaman að :)



I´m preparing for my Christmas photo Calander !  It starts December first :)  
I´m busy preparing and I´ve already taken some of the photos but I´m waiting for some snow so I can finish :)
I made a little video from my photos from last years Christmas photo calendar. Enjoy ♥

Hugs
Kristín