Saturday, February 23, 2013

Innrammað sjónvarp

Jæja, erum komin með sjónvarp í bústaðinn og er herbergið sem það er í frekar lítið og því ekki pláss fyrir einhverja hillusamstæðu.  Við þurfum því að hengja það upp á vegg og ákváðum við að prófa að ramma það inn eins og ég sá á pinterestinu, bæði hér og hér.  Það líka dregur aðeins úr svarta litnum sem myndi gleypa herbergið.
 
Það kemur líka bara svona ljómandi vel út.
 
 
Völdum að hafa rammann svoldið grófann.  Fundum gamlar spýtur úti sem voru búnar að veðrast vel og orðnar svoldið gráar.   Pússuðum þær ekki neitt, leyfðum þeim bara að njóta sín. 
 
 
 
 
Flatskjárinn ekki alveg sá nýjasti í bænum þannig að við þurftum að hafa rammann svona djúpan.
 
 
 
 
Þarf svo að finna ráð til að fela svörtu ljótu snúruna...hehe....af hverju í ósköpunum eru rafmagnssnúrur alltaf svartar !
 
For my english speaking friends.  This is my new framed TV that we made for our summerhouse.

13 comments:

  1. Þið eruð nú meiri snillingarnir :)

    kveðja
    Bakkafrúin

    ReplyDelete
  2. þetta kemur hrikalega vel út, þvílíkt flott!!!! Hérna er hugmynd fyrir snúruna http://pinterest.com/pin/291397038359271469/ :-)

    ReplyDelete
    Replies
    1. úhhh....þetta er sniðugt. Ég möndla þetta einhvernveginn ;-)

      Delete
  3. Þetta er mjög, mjög skemmtilegt :)

    kv. Bogga

    ReplyDelete
  4. Vá þetta er æðislegt :)

    Kv
    Hugrún Mosó (kvitt kvitt loksins)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk takk Hugrún....gaman að fá kvitt frá þér....loksins :-)

      Delete
  5. Algjörlega brill! Bara ef það væri hægt að leysa allt með svona snilldarkassa :)

    ReplyDelete
  6. Frábær hugmynd! Sammála þér með snúrurnar, geta farið ægilega í taugarnar á manni ;)

    ReplyDelete
  7. Frábær og vel útsett hugmynd, geri klárlega eitthvað svona þegar bumbusjónvarpinu mínu þóknast að gefa upp öndina :D

    ReplyDelete