....síðasta holl. Loksins er ég búin að setja flestar myndirnar mínar inn á síðuna. Nú fer ég að setja eina og eina mynd inn í einu. Njótið (ef einhver er þá að skoða þessa síðu;-))
Í mars var ég í svokölluðu Creative Team hjá skrapphönnuði sem heitir Windgefluester. Það sem ég þarf að gera er að búa til eina síðu úr hverju kitti sem hún hannar og pósta það í 3 galleríium og kynna kittin hennar þar sem ég get. Það besta við þetta allt saman er að ég fæ öll kittin hennar ókeypis, ekki slæmt það. Hér koma myndirnar sem ég gerði:
Gerði þessar tvær myndir úr einu æðislegu kitti frá Jofia design sem heitir Sea oh sea, bara geðveikt eins og allt sem þessi hönnuður gerir.
Hér er kittið:
Hér eru svo myndirnar sem ég gerði. Myndirnar af Matthildi voru teknar úti á Krít í fyrrasumar. Nánari upplýsingar getið þið séð á galleríinu mínu á DST
Það var mjög gaman að gera þessar myndir enda myndefnið ekki af verri kantinum :-)
Ætli maður bæti ekki fleirum myndum við. Nú koma myndir frá 2008. Allar myndirnar mínar getið þið svo séð í gallerýinu mínu á síðunni Digishoptalk, ásamt lista af því sem ég notaði til að gera síðurnar.