Jæja, nú er sumarið komið í garðinn okkar þannig að ég tók mig til í dag og tók til á pallinum á Kínakoti og í kringum útieldhúsið.
Útieldhúsið er ein mesta snilldin sem búin hefur verið til á þessu heimili en ég fékk þessa hugmynd fyrir nokkrum árum og sendi kallinn út í skúr að smíða.
Hann smíðaði það úr vatnsheldum krossvið og er það kannski ekki það fallegasta en notagildið er ótvírætt.
Góðar geymslur eru fyrir allt eldhúsdótið og bakaraofn.
Svo voru eldavélahellurnar gerðar úr trjáskífum:
Svo er það vaskurinn. En við söguðum úr borðinu og settum þar vaskafat. Svo til að gera þetta enn flottara þá fundum við gamlan krana sem við áttum og bættum honum við og svo niðurfalli. Síðan getum við tengt garðslönguna í vaskinn og voila.....það er komið rennandi vatn ! ...og öll börn, bæði strákar og stelpur gleyma sér þarna við allskyns sullerí og eldamennsku :-)
Annað sem við gerðum líka á pallinum hjá Kínakoti var sandkassi. Ég var orðin svo þreytt á að fá ketti nágrannanna í heimsókn í sandkassann okkar að ég vildi hafa hann yfirbyggðan. Samt vildi ég ekki hafa hann of stóran þannig að þetta varð niðurstaðan:
hummm....flottur pallur...
...hvað gerist hér ???
ahaaa....sandkassi :-)
...svo sópar maður bara sandinum aftur ofaní sandkassann.
Svo í lokin eru nokkrar myndir af Kínakotinu úr sólinni í dag. Ég á eftir að taka vorhreingerningu inni, þegar það verður gert þá tek á nýjar myndir.
Fín blóm úr Megastore á 298 kr :-)
Svo er hægt að tylla sér og fá sér drulluköku !
Dömur að leik, veit ekki hvorri finnst þetta skemmtilegra, þessi 8 ára eða þessi 4 ára :-)
Sólarkveðja
Kristín
Dásemd! heppnar stelpur sem eiga þennan flotta kofa og ég kíki á þessi blóm í Megastore á morgun!
ReplyDeleteVá hvað þetta er fallegt og flott hjá ykkur. Stelpurnar ekkert smá heppnar að hafa þennan kofa í garðinum sínum.
ReplyDeleteÞetta er dásamlega fallegur kofi og snilldar útfærsla á útieldhúsinu og sandkassanum.
ReplyDeleteYndislega fallegur kofi og margar frábærar hugmyndir þarna á ferðinni.
ReplyDeletekveðja Adda
Ævintýralega flott hjá ykkur! Og sandkassahugmyndin er náttúrulega bara snilld :)
ReplyDeleteNú er bara að vonast eftir góðu sumri,
bestu kveðjur,
Kikka
Þetta er sko aldeilis fallegur kofi og stelpurnr ekkert smá heppnar með Kínakot. Sandkassahugmyndin og útieldhúsið er bara snilld.
ReplyDeleteKv.Hjördís
Vá þetta er algjörlega mergjað !
ReplyDeleteÞið eruð svo miklir snillingar :)
ReplyDeletegeggjað flott hja ykkur
knús í hús
Nafnan
Svakalega er þetta flott og sniðugt hjá ykkur!
ReplyDeleteMikid rosalega ertu dugleg í blogginu ;-) Hlakka til ad koma í sveitina til ykkar í sumar og fá kökur í yndislega Kínakotinu :-) ...Og ad ég tali nú ekki um ad ad fá ad knúsa ykkur eftir viku!!!!
ReplyDeleteÉg er nú bara alveg yfir mig heilluð. Þetta útieldhús er bara algjör snilld svo börnin geti drullumallað eins og þeim sýnist án þess að það bitni á kofanum fína. og svo er bara dásemd að hafa svona fínan pall í kringum kofann. já og blómin undir glugganum eru æði og .. og.. og þetta er bara dásamlegt :)
ReplyDeletekveðja úr Stínu kofa í Keflavíkinni
Æði Kristín og ekkert meir að segja um það ;o)
ReplyDeleteKnús,
Sigga
vertu velkomin heim Kristín og takk fyrir skilaboðin. Ég er svo innilega sammála þér. Hér finnum við falleg hús og svona búðir...ef við leitum eða vitum um þær, en þarna bara hreinlega detturðu um þetta um allt. og trén og gróðurinn!!
ReplyDelete.. annars hélt ég fyrst þegar ég sá þína síðu og mynd af kofanum að þú byggir örugglega ekki hér á Íslandi, haha engin smá tré sem þú ert með og kofinn eins og fallegu rauðmáluðu húsin í Norsku sveitunum.
kv stína