Sunday, June 3, 2012

Útieldhúsið

Jæja, nú er sumarið komið í garðinn okkar þannig að ég tók mig til í dag og tók til á pallinum á Kínakoti og í kringum útieldhúsið.


Útieldhúsið er ein mesta snilldin sem búin hefur verið til á þessu heimili en ég fékk þessa hugmynd fyrir nokkrum árum og sendi kallinn út í skúr að smíða. 


Hann smíðaði það úr vatnsheldum krossvið og er það kannski ekki það fallegasta en notagildið er ótvírætt. 

Góðar geymslur eru fyrir allt eldhúsdótið og bakaraofn.


Svo voru eldavélahellurnar gerðar úr trjáskífum:


Svo er það vaskurinn.  En við söguðum úr borðinu og settum þar vaskafat.  Svo til að gera þetta enn flottara þá fundum við gamlan krana sem við áttum og bættum honum við og svo niðurfalli.  Síðan getum við tengt garðslönguna í vaskinn og voila.....það er komið rennandi vatn !  ...og öll börn, bæði strákar og stelpur gleyma sér þarna við allskyns sullerí og eldamennsku :-)




Annað sem við gerðum líka á pallinum hjá Kínakoti var sandkassi.  Ég var orðin svo þreytt á að fá ketti nágrannanna í heimsókn í sandkassann okkar að ég vildi hafa hann yfirbyggðan.  Samt vildi ég ekki hafa hann of stóran þannig að þetta varð niðurstaðan:

hummm....flottur pallur...


...hvað gerist hér ???


ahaaa....sandkassi :-)


 ...svo sópar maður bara sandinum aftur ofaní sandkassann.

Svo í lokin eru nokkrar myndir af Kínakotinu úr sólinni í dag.  Ég á eftir að taka vorhreingerningu inni, þegar það verður gert þá tek á nýjar myndir.

Fín blóm úr Megastore á 298 kr :-)


Svo er hægt að tylla sér og fá sér drulluköku !


Dömur að leik, veit ekki hvorri finnst þetta skemmtilegra, þessi 8 ára eða þessi 4 ára :-)







Sólarkveðja
Kristín

13 comments:

  1. Dásemd! heppnar stelpur sem eiga þennan flotta kofa og ég kíki á þessi blóm í Megastore á morgun!

    ReplyDelete
  2. Vá hvað þetta er fallegt og flott hjá ykkur. Stelpurnar ekkert smá heppnar að hafa þennan kofa í garðinum sínum.

    ReplyDelete
  3. Þetta er dásamlega fallegur kofi og snilldar útfærsla á útieldhúsinu og sandkassanum.

    ReplyDelete
  4. Yndislega fallegur kofi og margar frábærar hugmyndir þarna á ferðinni.
    kveðja Adda

    ReplyDelete
  5. Ævintýralega flott hjá ykkur! Og sandkassahugmyndin er náttúrulega bara snilld :)

    Nú er bara að vonast eftir góðu sumri,
    bestu kveðjur,
    Kikka

    ReplyDelete
  6. Þetta er sko aldeilis fallegur kofi og stelpurnr ekkert smá heppnar með Kínakot. Sandkassahugmyndin og útieldhúsið er bara snilld.

    Kv.Hjördís

    ReplyDelete
  7. Vá þetta er algjörlega mergjað !

    ReplyDelete
  8. Þið eruð svo miklir snillingar :)
    geggjað flott hja ykkur
    knús í hús
    Nafnan

    ReplyDelete
  9. Svakalega er þetta flott og sniðugt hjá ykkur!

    ReplyDelete
  10. Mikid rosalega ertu dugleg í blogginu ;-) Hlakka til ad koma í sveitina til ykkar í sumar og fá kökur í yndislega Kínakotinu :-) ...Og ad ég tali nú ekki um ad ad fá ad knúsa ykkur eftir viku!!!!

    ReplyDelete
  11. Ég er nú bara alveg yfir mig heilluð. Þetta útieldhús er bara algjör snilld svo börnin geti drullumallað eins og þeim sýnist án þess að það bitni á kofanum fína. og svo er bara dásemd að hafa svona fínan pall í kringum kofann. já og blómin undir glugganum eru æði og .. og.. og þetta er bara dásamlegt :)

    kveðja úr Stínu kofa í Keflavíkinni

    ReplyDelete
  12. Æði Kristín og ekkert meir að segja um það ;o)

    Knús,
    Sigga

    ReplyDelete
  13. vertu velkomin heim Kristín og takk fyrir skilaboðin. Ég er svo innilega sammála þér. Hér finnum við falleg hús og svona búðir...ef við leitum eða vitum um þær, en þarna bara hreinlega detturðu um þetta um allt. og trén og gróðurinn!!
    .. annars hélt ég fyrst þegar ég sá þína síðu og mynd af kofanum að þú byggir örugglega ekki hér á Íslandi, haha engin smá tré sem þú ert með og kofinn eins og fallegu rauðmáluðu húsin í Norsku sveitunum.
    kv stína

    ReplyDelete