Ég (eins og kannski flestar aðrar konur ;-)) elska að skoða uppskriftir og hvað þá að elda eitthvað nýtt og ljúffengt. Í dag er til svo mikið af skemmtilegum matarbloggum með ótrúlega mikið af skemmtilegum og girnilegum uppskriftum. Ég á þrjú uppáhalds matarblogg sem ég skoða reglulega og hef prófað nokkrar uppskriftir þaðan.
Fyrst má nefna Ljúfmeti og lekkerheit.
Ég man þegar ég skoðaði þá síðu fyrst, þá var fyrsti dagurinn minn í átaki....ekki góð hugmynd...hehe. Allar uppskriftirnar svo girnilegar og er ég búin að prófa þónokkrar og eru allar alveg ótrúlega góðar. Sú uppskrift sem ég hef gert oftar en einu sinni og oftar en tvisvar er Möndlukakan góða. Mæli með henni, mjög einföld, fljótleg og ljúffeng. Uppskrift hér.
Næst vil ég nefna Eldhússögur. Enn og aftur, alveg ótrúlega girnilegar uppskriftir. Uppáhalds uppskriftin mín þaðan er án efa Kjúklingasúpan með eplum, karrý og engifer. Ein besta súpa sem ég hef smakkað og maðurinn minn gekk svo langt að segja að þetta VÆRI besta súpan sem hann hefði smakkað. Uppskrift hér.
Svo er það hún Eva Laufey Kjaran. Ótrúlega fallegt matarblogg með flottum "skref fyrir skref" myndum.
Ef þið eruð með matarblogg eða fylgist með einhverjum skemmtilegum matarbloggum þá megið þið endilega láta mig vita og ég bæti þeim við listann minn.
Einnig langar mig að segja ykkur mataráhugafólki frá einni snilldarsíðu sem heitir Tastebook. Það er síða sem heldur utanum allar uppáhalds uppskriftirnar þínar. Ég er búin að setja um 100 uppskriftir inn á mína síðu. Uppskriftirnar mínar get ég því nálgast hvar sem er (ef ég kemst í tölvu) og svo get ég deilt uppskriftunum mínum með vinum og vandamönnum. Svo er hægt að panta uppskriftabókina sína og maður fær uppskriftasafnið sitt í fallegri gormabók. Algjör snilld !!
Jæja og svo í lokin langar mig að prófa að vera lítill matarbloggari. Þetta blogg er hvort er eð stefnulaust og hví ekki að blogga um mat líka ;-)
Ég fór í vinasaumaklúbb í gær þar sem við áttum allar að koma með eitthvað á borðið. Ég ákvað að koma með Basilbollurnar góðu. Þær fékk ég upphaflega í saumaklúbb hjá Díönu vinkonu minni og kemur uppskriftin úr Gestgjafanum.
Basilbollurnar eru rosalega góðar og er komin hefð hjá okkur að baka þær á Bolludaginn í stað hinna hefðbundnu bolla. Mjög einfaldar og góðar.
Innihald:
Aðferð:
Hitið ofninn í 190°. Setjið mjólk, smjör og salt í pott og hitið að suðu. Hrærið í þar til smjörið er bráðið. Setjið þá hveitið út í, takið af hitanum og hrærið rösklega þar til deigið sleppir börmunum. Látið kólna smástund og hrærið svo eggjunum saman við einu í senn. Deigið á að vera svo þykkt að það haldi lagi og e.t.v. þarf aðeins að nota hluta af seinasta egginu. Hrærið ostinum saman við og síðan fersku basil. Mótið kúlur úr deginu með tveimur teskeiðum og raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu. Penslið bollurnar með með eggjarauðu og bakið þær í miðjum ofni í 20-25mín eða þar til þær hafa tekið góðan lit og falla ekki (takið eina út til að prófa).
Verði ykkur að góðu :-)
Kristín
stefnulaus blogg eru góð blogg, þau koma með nýtt og ferkst inn :)
ReplyDeletekveðja
Bakkafrúin
Takk fyrir að deila þessu, ég vissi ekki um þessi matarblogg - og er nú bara með vatn í munninum :)
ReplyDeleteSvo get ég líka deilt einu flottu bloggi nágranna míns, allskonar.is - þar er nú margt áhugavert.
Þvílíkur heiður að vera á listanum hjá þér Kristín. Þú gleður mig lengst inn að hjartarótum. Takk, takk ♥
ReplyDeleteMér líst mjög vel á þig sem matarbloggara og þykir það passa vel inn á fallegu síðuna þína.
Kveðja, Svava.
Takk fyrir að setja Eldhússögur á listann! :) Svo gaman að heyra að þér (og eiginmanninum! :) líki bloggið og uppskriftirnar! Bloggið þitt er frábært, við erum greinilega með nákvæmlega sama smekk, mér finnst allt svo smart sem þú gerir eða setur inn myndir af. Arininn í bústaðnum er bara dásemd svo ekki sé talað um leikhús stelpnanna þinna, það er algjör draumur! :)
ReplyDeleteeitt af mínum uppáhalds matarbloggum er http://www.laeknirinnieldhusinu.com/ margar góðar uppskriftir þar :)
ReplyDeleteAnnað áhugavert matarblogg er alberteldar.com
ReplyDeleteKveðja
Eyleif
Hæ, nafna. Þetta matarblogg kryddar skemmtilega bloggið þitt :) Tek undir með Eyleif alberteldar.com og svo er allskonar.is skemmtileg síða. Kveðjur úr Hlíðunum.
ReplyDeleteTakk fyrir skemmtilegt blogg og hér er ein enn uppskriftasíðan sem er gaman að fylgjast með: http://eldadivesturheimi.com/
ReplyDeleteMeð kveðju, Guðrún
Bara Frábært hjá þér Kristín, elska bókstaflega ljúfmetið og eldhússögurnar og elda eins og mér sé borgað fyrir af báðum þessum síðum, fjölskyldunni til mikillar ánægju og gleði enda alltaf e-ð nýtt á boðstólnum! :-)
ReplyDeleteMér finnst líka gaman að kíkja á brizos.blogspot.com - hef prófað og verið ánægð og svo er eitt hollenskt sem gaman er að skoða http://www.kayotic.nl/blog/ og já smitten kitchen er einnig flott matarblogg
K.Kv.
Sigga
Sæl Kristín og gaman að rekast á síðuna þína. Hef sjáf verið að skoða sum matarbloggin sem eru nefnd hérna og var að leita að fleirum. Fallegar myndirnar þínar . Vonandi hittumst við fljótlega með litlu dömurnar.
ReplyDeleteKveðjur
Harpa Svavarsd.