Ég hef lengi haft áhuga á ljósmyndun en kannski lítið gert í því að læra eitthvað og að læra vel á myndavélina mína. Maður notar þvi miður allt of oft auto stillinguna :-( En ég stefni á það í framtíðinni að læra meira.
En á meðan þá æfir maður sig bara með fallegustu fyrirsæturnar, dætur mínar ;-) Ég fór með þær út um síðustu helgi, settist út i móa með stóru linsuna, þær léku sér og ég skaut um 200 myndir af þeim.....því að þá fær maður alltaf 20-30 mjög góðar. Mér finnst skemmtilegustu myndirnar þar sem þær eru ekki með athyglina á mér og eru í leik, ekkert of uppstillt.
Ég vinn svo myndirnar alltaf aðeins í photoshop, lýsi þær, eyk contrastinn í levels og dreg aðeins niður litinn í saturation. Svo hef ég aðeins verið að prófa að nota actions í photoshop sem er fljótleg leið til að vinna með myndirnar. Það er hægt að fá flott actions hjá Florabella Collection og My 4 hens photography. Svona actions kosta slatta en hægt er á frá fríar prufur hér undir freebie. Sniðugt til að prófa þetta :-)
Hérna kemur svo afraksturinn
Hérna er linkur á Sunday Snapshot þar sem fullt af fólki er að deila myndunum sínum og myndatrikkum.
Sumarkveðja
Kristín Vald