Thursday, July 31, 2014
Tuesday, July 29, 2014
Íslenskt sumar
Það hefur ekki mikið farið fyrir góða veðrinu hérna á suðvestur hluta landsins og má með sanni segja að það hafi verið týbískt íslenskt sumar með roki og rigningu ;) Það rofaði að hluta til í tvo daga um miðjan júlí og þá hentist ég i leikskólann um hádegi og náði snemma í leikskólastelpuna mína til að nota veðrið....og sem betur fer þar sem það var farið að rigna daginn eftir.
Tók myndirnar á yndislegum stað, í einkagarði við hliðina á æskuheimili mínu. Sóleyjar, engi og skógur.....hvað getur maður beðið um meira :)
Tók myndirnar á yndislegum stað, í einkagarði við hliðina á æskuheimili mínu. Sóleyjar, engi og skógur.....hvað getur maður beðið um meira :)
A photo session with all these beautiful buttercups one day in July when it stopped raining for tvo days ;)
Kristín Vald
Monday, July 7, 2014
Rabarbari
Sumarið hingað til hefur ekki verið mjög myndavænt, endalaus rigning og leiðindaveður og þegar það hefur stytt smá upp þá hef ég alltaf verið upptekin ! En ég held enn í vonina :)
Tókum upp rabarbara í gær og tókum nokkrar myndir í leiðinni og gerðum svo gómsætt rabarbarapæ um kvöldið. Slóum 3 flugur í einu höggi :)
I´ve not taken many pictures this summer :( The summer here in Iceland has been very wet and windy ! But we harvested some rhubarb yesterday and I took some pictures....and made a rhubarbpie last night :)
Kristín Vald
Monday, June 16, 2014
Saturday, June 14, 2014
Á ströndinni
Erum úti á Spáni og því tilvalið að taka nokkrar myndir af dömunum á ströndinni :)
Hér eru skvísumyndir af 6 ára dömunni !
I´m on vacation in Spain right now so of course I took some pictures of my girls on the beach :)
Kristín Vald
Friday, June 6, 2014
Frozen afmæli
Litla heimasætan hélt upp á 6 ára afmælið sitt í vikunni og bað að sjálfsögðu um Frozen afmæli. Ég fór því að einn rúnt um Pinterest og fékk fullt af skemmtilegum hugmyndum sem ekki kostuðu mikið :)
Ég keypti ljósblá plastglös og diska. Síðan gróf ég upp jóladótið og fann hekluðu snjókornin mín og hengdi þau í ljósakrónuna fyrir ofan borðið.
Bakaði síðan muffins og gerði ljósblátt smjörkrem sem ég sprautaði mjög frjálslega á kökurnar. Það átti að koma mjög fallegt rósarmunstur á kökurnar en það heppnaðist einhvernveginn ekki....hehe....en 6 ára skvísurnar voru lítið að spá í því ;-)
Svo keypti ég snjókornaskraut í Allt í köku og dreyfði yfir kökurnar. Síðan eru það Frozen topparnir sem gera útslagið. Fann myndir á Pinterest sem ég prentaði út í tveimur eintökum, klippti og límdi saman bak í bak og festi tannstöngul á milli. Einfalt en skemmtilegt :)
Svo voru það sætu snjókarlanefin sem ég gat ekki sleppt ! Litlar gulrætur :) Stelpurnar borðuðu snjókarlanefin upp til agna og var eiginlega of lítið af þeim. Gott að hafa smá hollt líka :) Bjó líka til ídýfu úr sýrðum rjóma og púrrulaukssúpu sem þær gátu dýft í.
Bara sætur hann Ólafur :)
Svo þurftum við að sjálfsögðu að hafa hreindýrahorn !! Lítil pretzels :)
Miðana föndraði ég í photoshop með myndum sem ég fann á netinu.
Hreindýrið Sveinn !
Stelpurnar fengu Frozen fígúrurnar frá ömmu og afa í vetur og voru þær að sjálfsögðu notaðar. Setti smá gervisnjó í kertastjakann minn og leyfði þeim Önnu, Elsu, Kristjáni og Hans að njóta sín þar.
Svo voru það gjafapokarnir sem allar stelpurnar fengu í þakkargjöf. En það voru "Viltu koma að gera snjókarl" poki :)
Í honum voru 3 stórir marshmellows og 2 litlir fyrir fætur. 2 saltstangir fyrir hendur. 5 súkkulaðidropar fyrir hnappa og augu og svo 1 appelsínugult nammi fyrir nef ! Sem sagt allt sem maður þarf til að búa til snjókarl :)
Notaði sellofón gjafapoka úr Söstrene og svo föndraði ég toppinn og heftaði við.
Það er sem sagt ýmislegt skemmtilegt hægt að gera :)
A little Frozen birthday party I did for my daughters 6 years birthdayparty !
kveðja
Kristín Vald
Monday, April 21, 2014
End of Easter
Síðasta myndin í páska handa seríunni minni :) Vonandi hafið þið haft gaman af !
The last picture in my hand themed Easter series, hope you´ve enjoyed :) Have a nice day !
Kristín
Sunday, April 20, 2014
Saturday, April 19, 2014
Friday, April 18, 2014
Good friday
Föstudagurinn langi í dag !
The Good Friday today !
Have a wonderful day
Thursday, April 17, 2014
Wednesday, April 16, 2014
Tuesday, April 15, 2014
Páskar nálgast !!
Páskarnir nálgast og þá kemst maður í páskagírinn og fannst mér því upplagt að taka nokkrar páskamyndir í stíl við jólamyndirnar mínar......en í aðeins minni útgáfu ;-) Finnst mjög gaman að taka fallegar handamyndir og verður handaþema þessa páskana !
Mun því birta eina páskamynd á dag fram á annan í páskum.
Easter is coming soon so I wanted to take some Easter photos. I decided to do a Easter "hand" theme :)
So I will be posting one Easter picture for the next days until Easter !
Enjoy
Kristin
Friday, March 14, 2014
Góða helgi
Tvær í viðbót úr síðustu myndatöku.
Góða helgi :)
Two more from last shoot ! Have a wonderful weekend !
Kristín
Tuesday, March 11, 2014
Little traveler
Litli ferðalangurinn leggur af stað á vit ævintýranna !
Little traveler heading toward new adventures :)
Kristín
Monday, March 10, 2014
Skógarferð
Loksins kíkti ég út með stelpurnar mínar og tók nokkrar myndir af þeim í fallega snjónum sem var um helgina. Sýni meiri myndir á næstunni !
I finally went outside and took some picture of my daughters in the snow ! No spring here in Iceland yet ;-) More to come !
Kristín
Subscribe to:
Posts (Atom)


































