Jæja, erum komin með sjónvarp í bústaðinn og er herbergið sem það er í frekar lítið og því ekki pláss fyrir einhverja hillusamstæðu. Við þurfum því að hengja það upp á vegg og ákváðum við að prófa að ramma það inn eins og ég sá á pinterestinu, bæði hér og hér. Það líka dregur aðeins úr svarta litnum sem myndi gleypa herbergið.
Það kemur líka bara svona ljómandi vel út.
Völdum að hafa rammann svoldið grófann. Fundum gamlar spýtur úti sem voru búnar að veðrast vel og orðnar svoldið gráar. Pússuðum þær ekki neitt, leyfðum þeim bara að njóta sín.
Flatskjárinn ekki alveg sá nýjasti í bænum þannig að við þurftum að hafa rammann svona djúpan.
Þarf svo að finna ráð til að fela svörtu ljótu snúruna...hehe....af hverju í ósköpunum eru rafmagnssnúrur alltaf svartar !
For my english speaking friends. This is my new framed TV that we made for our summerhouse.
Þið eruð nú meiri snillingarnir :)
ReplyDeletekveðja
Bakkafrúin
Takk nafna mín :-)
Deleteþetta kemur hrikalega vel út, þvílíkt flott!!!! Hérna er hugmynd fyrir snúruna http://pinterest.com/pin/291397038359271469/ :-)
ReplyDeleteúhhh....þetta er sniðugt. Ég möndla þetta einhvernveginn ;-)
DeleteÞetta er mjög, mjög skemmtilegt :)
ReplyDeletekv. Bogga
Takk Bogga :-)
DeleteVá þetta er æðislegt :)
ReplyDeleteKv
Hugrún Mosó (kvitt kvitt loksins)
Takk takk Hugrún....gaman að fá kvitt frá þér....loksins :-)
DeleteAwesome!!! You rock :)
ReplyDeleteAlgjörlega brill! Bara ef það væri hægt að leysa allt með svona snilldarkassa :)
ReplyDeleteFrábær hugmynd! Sammála þér með snúrurnar, geta farið ægilega í taugarnar á manni ;)
ReplyDeleteSnillar!
ReplyDeleteFrábær og vel útsett hugmynd, geri klárlega eitthvað svona þegar bumbusjónvarpinu mínu þóknast að gefa upp öndina :D
ReplyDelete