Monday, June 16, 2014
Saturday, June 14, 2014
Á ströndinni
Erum úti á Spáni og því tilvalið að taka nokkrar myndir af dömunum á ströndinni :)
Hér eru skvísumyndir af 6 ára dömunni !
I´m on vacation in Spain right now so of course I took some pictures of my girls on the beach :)
Kristín Vald
Friday, June 6, 2014
Frozen afmæli
Litla heimasætan hélt upp á 6 ára afmælið sitt í vikunni og bað að sjálfsögðu um Frozen afmæli. Ég fór því að einn rúnt um Pinterest og fékk fullt af skemmtilegum hugmyndum sem ekki kostuðu mikið :)
Ég keypti ljósblá plastglös og diska. Síðan gróf ég upp jóladótið og fann hekluðu snjókornin mín og hengdi þau í ljósakrónuna fyrir ofan borðið.
Bakaði síðan muffins og gerði ljósblátt smjörkrem sem ég sprautaði mjög frjálslega á kökurnar. Það átti að koma mjög fallegt rósarmunstur á kökurnar en það heppnaðist einhvernveginn ekki....hehe....en 6 ára skvísurnar voru lítið að spá í því ;-)
Svo keypti ég snjókornaskraut í Allt í köku og dreyfði yfir kökurnar. Síðan eru það Frozen topparnir sem gera útslagið. Fann myndir á Pinterest sem ég prentaði út í tveimur eintökum, klippti og límdi saman bak í bak og festi tannstöngul á milli. Einfalt en skemmtilegt :)
Svo voru það sætu snjókarlanefin sem ég gat ekki sleppt ! Litlar gulrætur :) Stelpurnar borðuðu snjókarlanefin upp til agna og var eiginlega of lítið af þeim. Gott að hafa smá hollt líka :) Bjó líka til ídýfu úr sýrðum rjóma og púrrulaukssúpu sem þær gátu dýft í.
Bara sætur hann Ólafur :)
Svo þurftum við að sjálfsögðu að hafa hreindýrahorn !! Lítil pretzels :)
Miðana föndraði ég í photoshop með myndum sem ég fann á netinu.
Hreindýrið Sveinn !
Stelpurnar fengu Frozen fígúrurnar frá ömmu og afa í vetur og voru þær að sjálfsögðu notaðar. Setti smá gervisnjó í kertastjakann minn og leyfði þeim Önnu, Elsu, Kristjáni og Hans að njóta sín þar.
Svo voru það gjafapokarnir sem allar stelpurnar fengu í þakkargjöf. En það voru "Viltu koma að gera snjókarl" poki :)
Í honum voru 3 stórir marshmellows og 2 litlir fyrir fætur. 2 saltstangir fyrir hendur. 5 súkkulaðidropar fyrir hnappa og augu og svo 1 appelsínugult nammi fyrir nef ! Sem sagt allt sem maður þarf til að búa til snjókarl :)
Notaði sellofón gjafapoka úr Söstrene og svo föndraði ég toppinn og heftaði við.
Það er sem sagt ýmislegt skemmtilegt hægt að gera :)
A little Frozen birthday party I did for my daughters 6 years birthdayparty !
kveðja
Kristín Vald
Monday, April 21, 2014
End of Easter
Síðasta myndin í páska handa seríunni minni :) Vonandi hafið þið haft gaman af !
The last picture in my hand themed Easter series, hope you´ve enjoyed :) Have a nice day !
Kristín
Sunday, April 20, 2014
Saturday, April 19, 2014
Friday, April 18, 2014
Good friday
Föstudagurinn langi í dag !
The Good Friday today !
Have a wonderful day
Thursday, April 17, 2014
Wednesday, April 16, 2014
Tuesday, April 15, 2014
Páskar nálgast !!
Páskarnir nálgast og þá kemst maður í páskagírinn og fannst mér því upplagt að taka nokkrar páskamyndir í stíl við jólamyndirnar mínar......en í aðeins minni útgáfu ;-) Finnst mjög gaman að taka fallegar handamyndir og verður handaþema þessa páskana !
Mun því birta eina páskamynd á dag fram á annan í páskum.
Easter is coming soon so I wanted to take some Easter photos. I decided to do a Easter "hand" theme :)
So I will be posting one Easter picture for the next days until Easter !
Enjoy
Kristin
Friday, March 14, 2014
Góða helgi
Tvær í viðbót úr síðustu myndatöku.
Góða helgi :)
Two more from last shoot ! Have a wonderful weekend !
Kristín
Tuesday, March 11, 2014
Little traveler
Litli ferðalangurinn leggur af stað á vit ævintýranna !
Little traveler heading toward new adventures :)
Kristín
Monday, March 10, 2014
Skógarferð
Loksins kíkti ég út með stelpurnar mínar og tók nokkrar myndir af þeim í fallega snjónum sem var um helgina. Sýni meiri myndir á næstunni !
I finally went outside and took some picture of my daughters in the snow ! No spring here in Iceland yet ;-) More to come !
Kristín
Friday, February 21, 2014
A little hi !!
Bara lítið hæ frá mér ! Er búin að vera mjög löt við að taka myndir undanfarið en vonandi fer að rætast úr því með hækkandi sól !
Er í vetrarfríi í sumarbústaðnum og hver veit nema maður nái einhverjum skemmtilegum myndum hér. Tók þessa í morgun þegar ég lá upp í rúmi :-)
Snagar sem ég gerði fyrir nokkru, fleiri myndir hér.
Góða helgi :)
I´ve been pretty lazy this year taking pictures but I hope I will take more pictures soon !
I´m in my summerhouse now and I shot this picture this morning as I lay in my bed :-)
Have a nice weekend :)
Kristín
Friday, January 17, 2014
Digital scrapbooking !!!
Loksins skrappaði ég, mína fyrstu mynd í tvö ár ! Ágætt að rifja aðeins upp handtökin og nota vetrarmyndirnar sem ég hef verið að taka !
Notaði nýtt kitt frá Emeto designs, Hats and mittens required !
Wow.....I scrapped !!! My first layout in two years.
I used Emeto designs new kit, Hats and mittens required.
Have a nice weekend
Kristín
Saturday, January 4, 2014
Last picture
Síðastu myndirnar sem ég tók á árinu 2013 ! Lillan mín aðeins að taka smá forskot á sæluna.
My last pictures from last year. My younger one practicing for New years :-)
Kristín
Thursday, January 2, 2014
Happy new year :-)
Gleðilegt ár kæru lesendur og takk fyrir öll innlitin síðasta árið....svo ég tali nú ekki um þá sem tóku sér smá tíma til að skilja eftir komment á síðunni minni :-)
Happy new year to all my readers :-)
Kristín
Sunday, December 29, 2013
Thursday, December 26, 2013
Tuesday, December 24, 2013
24.desember
Aðfangadagur
Síðasti dagurinn í Jólamyndadagatalinu mínu í dag.
Ég fékk þá hugmynd í lok október að hafa svona jólamyndadagatal, að birta eina vetrar- eða jólamynd eða myndasafn á hverjum degi á aðventunni. Myndir sem fá mann til að gleyma stressinu og ná fram einhverri notalegri "nostalgíu" tilfinningu sem er svo góð.
Tíminn síðan þá er búinn að vera mjög skemmtilegur en einnig nokkuð krefjandi. Mikill tími hefur farið hjá mér í hugmyndavinnu, safna propsi og ýmsum hlutum og finna tíma í ýmsar myndatökur (ekki alveg hægt að treysta á veðrið og birtuna hérna á Íslandi í desember). Þetta verkefni hefur ýtt mér út úr þægindahringnum en að sama skapi hefur það fengið mig til að hugsa hvað ég vil gera með þennan ljósmyndaáhuga minn. Held að ég sé að finna mína hillu í ljósmynduninni.....og þá er bara að finna út hvað ég vil gera :-)
Ég er orðlaus yfir móttökunum sem ég hef fengið hérna á síðunni. Ég met öll "komment" og öll "læk" og það er vegna ykkar sem ég held áfram á sömu braut :-) Takk takk <3 div="" style="text-align: center;"> 3>
Með þessum myndum af litla jólaenglinum mínum vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar :-)
Jólaknús og hlýja
Kristín
The day before Christmas is today, the last day in my Christmas photo Calendar.
With these pictures of my Christmas Angel I wish you all a Merry Christmas and a Happy new Year :-)
Hugs
Kristín
Monday, December 23, 2013
23.desember
Í dag er Þorláksmessa sem þýðir að dagatalið mitt lýkur á morgun...buhuuuu
Margir hafa þá hefð á Þorláksmessu að skreyta jólatréð sitt. Á mínu heimili höfum við skreytt jólatréð nokkrum dögum fyrir jól til að ná að njóta fegurðarinnar sem lengst :-)
Today, December 23th many people in Iceland have the tradition to decorate the Christmas tree. I on the other hand like to decorate the tree a few days before Christmas to enjoy the beauty for a longer time :-)
Shared with: Simple things Sunday, Sunday snapshot
Kristín
Subscribe to:
Posts (Atom)





















.jpg)




.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)




