Wednesday, June 12, 2013

Afmælisstelpa :-)

Ég er búin að bíða í allan vetur og allt vor eftir góða sumarveðrinu til að taka fallegar útimyndir og nota linsuna mína sem ég fékk í desember.  En nei nei.....sumarið ekki alveg á leiðinni.  Ég náði samt nokkrum myndum eftir kvöldmat í gærkvöldi...svona rétt á milli skúra ;-)  Mútaði snúllunni minni með ís þar sem mig langaði svo að taka af henni afmælismyndir því hún á 5 ára afmæli í dag.....jibbýýýýýý.
 
Myndatakan heppnaðist svona líka vel þó hún hafi ekki tekið nema um 15 mínútur.
 
 
 
 
...og svo er úrval af myndum úr tökunni....átti svoldið erfitt með að velja myndir !
 
 
Hérna er sniðugt forrit þar sem er hægt að gera svona myndasöfn (collage) eins og er hérna fyrir ofan.  Einfalt og þægilegt og hægt að velja um fullt af möguleikum :-)
 
Vona að sumarið fari nú að koma með sól í hjarta og blóm í haga.
 
kveðja
Kristín

Shared with: Favorite photo friday
 

12 comments:

  1. Innilega til hamingju með afmælisstelpuna þína. Fallegar myndir hjá þér, hvernig linsu fékkstu í desember? Vonandi fáum við að sjá myndir úr afmælisveislunni, ég er alveg viss um að þú hefur gert eitthvað fallegt sem gaman væri að sjá!

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk Agnes :-) Ég fékk 50 mm 1.4 í desember sem ég fíla í botn og get ekki beðið að nota hana almennilega úti í sumar. Svo fékk ég 70-200 linsuna í afmælisgjöf í maí :-)
      Þú færð því miður ekki að sjá neitt úr afmælisveislunni....hehe....hæfileikar mínir liggja á öðrum sviðum en í afmælisborðhaldi ;-)

      Delete
  2. Yndislegar myndir af afmælisstelpunni þinni, til hamingju með hana :)

    ReplyDelete
  3. Flottar myndir af flottri snúllu...
    Til hamingjum með afmælið hennar..

    ReplyDelete
  4. Gleymdist, við kommentið fyrir ofan...
    kveðja Ása

    ReplyDelete
  5. Stunning photos! SO beautiful!

    ReplyDelete
  6. Agnes G. BenediktsdóttirJune 14, 2013 at 8:24 PM

    Fallegar myndir af yndislegri afmælisstúlku.....Til lukku mað daginn!!! :) Knús og kveðja frá Norge :)

    ReplyDelete
  7. Ekki skrýtið að erfitt hafi verið að velja myndir, hver annarri flottari af prinsessunni. Kv. Björg

    ReplyDelete
  8. Jedúddimía hvað þetta eru sætar myndir af litla gleðigjafanum, outfittið er æði :)...Sé að Lóa verður að eignast eitt stykki gallajakka, smart saman ;-)

    Knús,
    Sigga

    ReplyDelete
  9. Til lukku með litlu skvísuna þína, hún er algjört yndi svo ekki sé meira sagt!
    Svo gaman að sjá myndirnar hjá þér, ég fæ bara ekki nóg ;o) Vonandi náum við að hittast í sumar, er að skoða miða heim ;o)
    Knús í kotið
    Vilborg

    ReplyDelete