Jæja, nú er aðeins vika í 1.desember sem þýðir að þá þarf að fara að huga að jóladagatalinu !
Ég gerði dagatalið okkar fyrir nokkrum árum síðan. Vildi gera eitthvað öðruvísi þar sem ég nennti ekki að finna endalausar litlar gjafir og þar að auki fá stelpurnar í skóinn frá 12.desember. Ég ákvað því að gera samverudagatal.
Á hverjum degi er þeim lofað samverustund með okkur foreldrunum. Stundin þarf ekki að vera stór, viðamikil eða dýr. Bara hversdagslegir hlutir sem við erum að gera á aðventunni en með þessu eru þeir gerðir spennandi og skemmtilegir. Þetta eru hlutir eins og að kíkja á kaffihús, baka piparkökur, horfa á jólamynd, föndra, skreyta, fara í göngutúr og skoða jólaljósin og svo framvegis. Mínar stelpur eru allavega spenntar yfir þessu og eru nú þegar farnar að koma með hugmyndir hvað þær vilja gera :-)
Ég hengdi 24 litla sæta ramma á stóra hvíta plötu og útbjó miða með tölum frá 1-24 sem ég setti inní rammana. Fyrir neðan rammana er svo lítill nagli þar sem ég hengi á lítinn upprúllaðan miða með slaufu.
Þið getið svo kíkt á fleiri myndir af dagatalinu mínu
hér.
En það er svooooo mikil til af skemmtilegum hugmyndum af jóladagatölum og ákvað ég að sýna ykkur nokkrar !
Hérna eru kaffibollar skreyttir skemmtilega.
Fallegir litlir babúsku pokar.
Hér er eitt mjöööög einfalt, umslög hengd upp á skemmtilegan hátt. Hægt er að útfæra þessa hugmynd á marga vegu.
Lítil sæt hús sett á jólagrein.
Hver vill ekki fá eina smáköku á hverjum degi í desember :-)
Þetta er snilld fyrir unglinginn....já eða skvísumömmuna ;-)
Litlir bréfpokar, hægt að útfæra á ýmsa vegu.
Sniðug lausn fyrir alla Pez kallana sem safnast upp :-)
Litlar dósir með segli aftaná sem eru svo hengdar á ísskápinn.
Önnur umslaga hugmynd.
Og svo eru það klósettpappírs rúllurnar :-)
Eitt sniðugt fyrir te unnendur !
Litlir vasar hengdir upp á vegg.
Algjör snilld fyrir endurvinnslufólkið :-)
Lítil box og pakkar í allskyns stærðum.
Mér finnst þessi falleg þar sem fallegt jólaksraut fær að njóta sín sem gjafir.
Fallegir marglitir jólasokkar hengdir á arininn.
24 litlar fötur með góðgæti.
Hver vill ekki fá einn koss á dag......því það kemur skapinu í lag :-)
Mjög sniðugt fyrir bjórunnendur.....
....en spurning hvort að vín dagatalið yrði kannski aðeins of mikið ???
Eins og þið sjáið eru hugmyndirnar endalausar. Þannig að nú er bara að fara að bretta upp ermarnar og undirbúa jóladagatalið ykkar !
Hér eru fleiri hugmyndir af skemmtilegum jóladagatölum á
Pinterest, nánar tiltekið 1250 hugmyndir :-)
Í desember ætla ég svo að hafa jólamyndadagatal hérna á blogginu og á
facebook síðunni.....fylgist því spennt með :-)
I just wanted to show you my Christmas calendar and some other ideas I found on Pinterest, some awsome ideas :-) I also wanted to tell you that I´m having a Christmas "photo" Calendar here on my blog in December.....so stay tuned :-)
kveðja
Kristín Vald