Saturday, October 13, 2012

Matarblogg

Ég (eins og kannski flestar aðrar konur ;-)) elska að skoða uppskriftir og hvað þá að elda eitthvað nýtt og ljúffengt.  Í dag er til svo mikið af skemmtilegum matarbloggum með ótrúlega mikið af skemmtilegum og girnilegum uppskriftum.  Ég á þrjú uppáhalds matarblogg sem ég skoða reglulega og hef prófað nokkrar uppskriftir þaðan.
 
Fyrst má nefna Ljúfmeti og lekkerheit.
Ég man þegar ég skoðaði þá síðu fyrst, þá var fyrsti dagurinn minn í átaki....ekki góð hugmynd...hehe.  Allar uppskriftirnar svo girnilegar og er ég búin að prófa þónokkrar og eru allar alveg ótrúlega góðar.  Sú uppskrift sem ég hef gert oftar en einu sinni og oftar en tvisvar er Möndlukakan góða.  Mæli með henni, mjög einföld, fljótleg og ljúffeng.  Uppskrift hér.
 
 
Næst vil ég nefna Eldhússögur.  Enn og aftur, alveg ótrúlega girnilegar uppskriftir.  Uppáhalds uppskriftin mín þaðan er án efa Kjúklingasúpan með eplum, karrý og engifer.  Ein besta súpa sem ég hef smakkað og maðurinn minn gekk svo langt að segja að þetta VÆRI besta súpan sem hann hefði smakkað.  Uppskrift hér.
 
 
Svo er það hún Eva Laufey Kjaran.  Ótrúlega fallegt matarblogg með flottum "skref fyrir skref" myndum.
 
Ef þið eruð með matarblogg eða fylgist með einhverjum skemmtilegum matarbloggum þá megið þið endilega láta mig vita og ég bæti þeim við listann minn.
 
Einnig langar mig að segja ykkur mataráhugafólki frá einni snilldarsíðu sem heitir Tastebook.  Það er síða sem heldur utanum allar uppáhalds uppskriftirnar þínar.  Ég er búin að setja um 100 uppskriftir inn á mína síðu.  Uppskriftirnar mínar get ég því nálgast hvar sem er (ef ég kemst í tölvu) og svo get ég deilt uppskriftunum mínum með vinum og vandamönnum.  Svo er hægt að panta uppskriftabókina sína og maður fær uppskriftasafnið sitt í fallegri gormabók.  Algjör snilld !!
 
 
Jæja og svo í lokin langar mig að prófa að vera lítill matarbloggari.  Þetta blogg er hvort er eð stefnulaust og hví ekki að blogga um mat líka ;-)
 
Ég fór í vinasaumaklúbb í gær þar sem við áttum allar að koma með eitthvað á borðið.  Ég ákvað að koma með Basilbollurnar góðu.  Þær fékk ég upphaflega í saumaklúbb hjá Díönu vinkonu minni og kemur uppskriftin úr Gestgjafanum. 
 
 
 
Basilbollurnar eru rosalega góðar og er komin hefð hjá okkur að baka þær á Bolludaginn í stað hinna hefðbundnu bolla.  Mjög einfaldar og góðar.
 
Innihald:
  • 250 ml mjólk
  • 100 g smjör
  • 1 tsk salt
  • 150 g hveiti
  • 100 g rifinn ostur (Ég nota bara heimilisost 26%)
  • 3-4 egg
  • lúka ferskt basil (mér finnst gott að hafa nóg af basil)
  •  
    Aðferð:
    Hitið ofninn í 190°. Setjið mjólk, smjör og salt í pott og hitið að suðu. Hrærið í þar til smjörið er bráðið. Setjið þá hveitið út í, takið af hitanum og hrærið rösklega þar til deigið sleppir börmunum. Látið kólna smástund og hrærið svo eggjunum saman við einu í senn. Deigið á að vera svo þykkt að það haldi lagi og e.t.v. þarf aðeins að nota hluta af seinasta egginu. Hrærið ostinum saman við og síðan fersku basil. Mótið kúlur úr deginu með tveimur teskeiðum og raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu. Penslið bollurnar með með eggjarauðu og bakið þær í miðjum ofni í 20-25mín eða þar til þær hafa tekið góðan lit og falla ekki (takið eina út til að prófa).
     
     
    Verði ykkur að góðu :-)
    Kristín

    Monday, October 1, 2012

    Kertaarinn

    Jæja, nú er haustið komið í bústaðinn okkar og þá er ekkert meira kósý en að kveikja í kertum og draga fram teppið og góða bók :-)
     
    Það var alltaf á planinu hjá okkur að fá okkur kertaarinn í bústaðinn eins og við erum með heima (sjá hér).  En úrvalið af svona örnum er ekkert rosalega mikið og verðið eftir því.  Ég sá einhvern sérsmíðan kertaarinn sem kostaði hátt í 150 þúsund krónur og vorum við ekkert mikið til í að eyða svo miklu þannig að það var á planinu í vetur að smíða svona arin sjálf. 
     
    En svo sáum við þennan líka fína ódýra arinn auglýstan í Byko á aðeins 27.900 kr og vorum við ekki lengi að stökkva á hann og hann líka svona smellpassar í bústaðinn :-) Það var hægt að kaupa rafmagnseldstæði inn í hann en við þurftum hann ekkert !
     
    Á aðeins eftir að skreyta meira í kringum hann, tók bara það sem ég átti heima, nokkra lurka og kertaluktir.
     
    Kemur hann ekki bara vel út ??
     
     
    Lurkarnir klikka ekki !!
    
     
     
    Fínar litlar kertaluktir sem ég keypti í Ilvu í fyrra á góðu verði fyrir jólin.
     
    
     
    Já og þetta eru nýjustu meðlimir fjölskyldunnar, rollurnar okkar :-)  Ég gjörsamlega féll fyrir þeim  í aðalbúðinni á Snæfellsnesinu, Blómsturvöllum á Hellissandi, æðisleg búð !!  Finnst þær koma vel út á arinhillunni.
     
     
    Svo er líka svona kósý þegar rökkrið skellur á.
     
     
     
     
     
    Sem sagt, algjör sæla með nýja kertaarininn okkar :-)
     
    Svo væri gaman að fá smá "komment" frá ykkur kæru lesendur.  Á góðum dögum koma tugir heimsókna á síðuna mína en kannski bara einn kvittar fyrir sig (og yfirleitt alltaf þeir sömu).  Veit ekki hvort ég nenni að setja eitthvað hérna inn ef enginn hefur áhuga á að lesa blaðrið í mér ;-)
     
    Góðar stundir !!

    Edit 17.febrúar 2013 - Sé að það eru rosalega margir sem koma inn á þennan póst hjá mér og hef ég líka fengið nokkrar fyrirspurnir um arininn og hvar ég hefði fengið hann.  Ég sá á Blandinu að það er uaðilar sem er að smíða svona kertaarna fyrir sanngjarnan pening.  Notendanafn þeirra er grrkn, Bíll 27, heimförin, SaraBjort06.

    Saturday, September 29, 2012

    Haustið - Autumn

    Haustið er svo yndislegur tími.  Fallegir litir, rökkrið, kertaljós og kósý.
     
    Til að reyna að fanga eitthvað af þessum fallegu litum og stemningu þá fór ég út með stelpurnar mínar í gær og var myndavélin með í för.
     
     

     








     
    Njótið !!

    For my english speaking friends:

    I just love autumn, it´s my favorite season. The beautiful colors, the darkness,
    candles and the cosy feeling. 
    So to try to catch the autumn feeling I went outside with my girls and the camera today :-)

     

    Sunday, September 23, 2012

    Endurvinnsla

    Nú á dögum er enginn maður með mönnum nema að endurvinna ruslið.  En svo er líka hægt að endurvinna fullt af gömlum hlutum sem við eigum á heimilinu.  Hér koma nokkrar hugmyndir sem hægt er að gera.....svo er bara að nota ímyndunaraflið :-)
     
    Gamlar ausur og skeiðar geta nýst á margan hátt, t.d. fyrir kerti og til að geyma ýmislegt góss.
     
     
     
     
     
    Svo er hægt að nota gömul hnífapör sem höldur á skápa.
     
     
     
     
    Já....eða nota skeiðar sem svona fínt ljós :-)
     
     
    Svo getur maður bara rammað gömlu silfurskeiðarnar hennar ömmu í fallegan ramma, bjútífúl :-)
     
     
    Áldósir geta verið til margra hluta nytsamlegar.
     
     
    Fallegt að mála þær og skella svo á þær einum gaffli !!
     
     Gamlar glerkrukkur.
     
     
     
    Hér er gamall sleði hengdur upp á vegg og notaður sem hilla.
     
     
    Gamalt kefli notað sem borð.
     
     
    Svo eru gömlu skíðunum hent upp vegg og notuð sem fatahengi.
     
     
    Smart kertastjakarar úr gömlum skermum.
     
     
    Gamla sigtið komið á góðan stað.
     
     
    Fallegt að setja gamla lykla í ramma.
     
     
    Hurðahúnar málaðir og notaðir sem hankar.
     
     
    Fallegur rammi getur verið fallegur bakki.
     
     
    Hægt er að nota gamla málmbakka sem minnistöflu.
     
     
    Gamla ferðataskan komin með nýtt hlutverk.
     
     
    Alveg sérdeilis fallegt.
     
     
    Hér er komið þetta fína fuglahús.
     
     
    Þetta er nú skemmtilegt, kerti sett undir gömul rifjárn :-)
     
     
    Vonandi kveikir þetta í einhverju hjá ykkur.  Fleiri hugmyndir má sjá hér.
     

    Tuesday, September 4, 2012

    Viður

    Já, ég veit.....ekki sú duglegasta hér í bloggheimum.  Það eru þó nokkur verkefni í gangi sem þið fáið sá sjá í vetur ;-)
     
    En þangað til ætla ég bara að sýna ykkur eitthvað sniðugt sem ég finn á veraldarvefnum.  Ég hef alltaf verið hrifin af náttúrulegum efnum eins og t.d. við.  Það er svo ótrúlega mikið hægt að gera með allskonar spýtur, trjálurka og greina og það besta er.....að það kostar ekki neitt ;-)  Bara fara útí garð (ef þið eigið garð) og saga nokkrar greinar og svo er alveg örugglega hægt að verða sér úti um einhverja sverari lurka hjá einhverjum sem eru að grisja garðinn sinn og skóga.
     
    Hérna koma nokkrar flottar hugmyndir:
     
    Þessi kökustandur er "absalútt" minn uppáhalds og er ég búin að panta svona hjá tengdó sem er smiður !!  Svo er kakan líka svo smart ;-)
     
     
    Hér er annar kökustandur, aðeins einfaldari:
     
     
    Bara ótrúlega smart möffinsstandur með flottum sveppamöffins
     
     
    Svo er það einfaldur kökudiskur
     
     
     
    Flottar diskamottur
     
     
    .....og ostabakki !!
     
     
    Svo er hægt að nota ímyndunaraflið í borðskreytingum
     
     
     
    Svo er hægt að saga niður greinar, allar í sömu stærð og líma niður á hjartalaga
    plötu og þá er kominn þessi fíni hitaplatti !
     
     
    Bora gat í trjálurka fyrir sprittkerti eða mjórra gat fyrir venjuleg kerti, ótrúlega smart !
     
     
     
    Þessi kerta og lurka arinn var notaður fyrir brúðkaup, fullkomið !
     
     
    Svo má bara stafla lurkunum upp í arininn, kemur vel út !
     
     
    ...eða mála þá hvíta upp á punt !
     
     
     
    Svo má nota stóra lurka í kolla.  Það er fullt af stórum öspum út um allan bæ sem er verið
    að fella og tilvalið að nota í svona kolla :-)
     
     
     
    Svo má líka mála þá hvíta !
     
     
     
    ...eða bora í þá nokkrar holur fyrir trélitina :-)
     
     
    Klósettrúlluhaldari og hankar
     
     
    Svo má mála á tréskífurnar með krítarmálningu !
     
     
     
    Sem sagt, ótrúlega mikið sem hægt er að gera fyrir ekki svo mikinn pening. OK...kannski ekki allir sem geta snarað sér út með vélsögina eeeeen, það er hægt að byrja smátt og fara út með klippurnar ;-)
     
    Allar þessar myndir og fleiri hugmyndir er hægt að sjá á Pinterestinu mínu.
     
    Ég gerði t.d. þennan krans fyrir nokkrum árum úr litlum tréskífum sem ég sagaði niður og límdi með límbyssu á svona grunnkrans úr Blómavali.
     

     
    Svo setti ég nokkra lurka í arininn minn síðasta vetur með stórum kertum og kom það mjög vel út (sést kannski ekki mjög vel á þessum myndum).

     
     Gangi ykkur vel !!