Ekki alveg duglegasti bloggarinn í bænum og má segja að ég sé í talsverði lægð ! En hugurinn er á fullu þessa dagana að skipuleggja fyrir bústaðinn, vetrarskreytingar í stofunni, jólagjafahugmyndir og skreytingar, jólakortapælingar og meira og meira. En ég mætti kannski vera duglegri að framkvæma....hehe....en það fer tími í heimildarvinnuna, er á fullu að finna hugmyndir á pinterestinu ;-)
En kannski ég hendi bara inn einni uppskrift af túrillunum mínum góðu. Þær eru mjög góðar og fínar t.d. í saumaklúbbinn, á ættarmótið, í útileguna, á bekkjarkvöldið eða hvað sem er :-)
Túrillur
2 pakkar tortillur
1 dós sýrður rjómi
1/2 flaska grænmetissósa (E.Finnsson)
1 lítil dós rjómaostur
1 Púrrulaukur
Ostur
Salsa sósa
Hrærið öllu sósugumsinu saman, skerið púrrulaukinn smátt og blandið saman við. Smyrjið tortillukökurnar, setjið sneiddan ost yfir og lokið með annari köku. Skerið svo samlokurnar í sneiðar. Gott er að setja samlokurnar í kæli og skera þær kaldar, þá verða kökurnar mýkri og sósan fer eki út um allt. Berið svo fram með salsa sósu.




.jpg)

.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)


.jpg)






























