Jæja, nú er haustið komið í bústaðinn okkar og þá er ekkert meira kósý en að kveikja í kertum og draga fram teppið og góða bók :-)
Það var alltaf á planinu hjá okkur að fá okkur kertaarinn í bústaðinn eins og við erum með heima (sjá
hér). En úrvalið af svona örnum er ekkert rosalega mikið og verðið eftir því. Ég sá einhvern sérsmíðan kertaarinn sem kostaði hátt í 150 þúsund krónur og vorum við ekkert mikið til í að eyða svo miklu þannig að það var á planinu í vetur að smíða svona arin sjálf.
En svo sáum við þennan líka fína ódýra arinn auglýstan í Byko á aðeins 27.900 kr og vorum við ekki lengi að stökkva á hann og hann líka svona smellpassar í bústaðinn :-) Það var hægt að kaupa rafmagnseldstæði inn í hann en við þurftum hann ekkert !
Á aðeins eftir að skreyta meira í kringum hann, tók bara það sem ég átti heima, nokkra lurka og kertaluktir.
Kemur hann ekki bara vel út ??
Lurkarnir klikka ekki !!
Fínar litlar kertaluktir sem ég keypti í Ilvu í fyrra á góðu verði fyrir jólin.
Já og þetta eru nýjustu meðlimir fjölskyldunnar, rollurnar okkar :-) Ég gjörsamlega féll fyrir þeim í aðalbúðinni á Snæfellsnesinu, Blómsturvöllum á Hellissandi, æðisleg búð !! Finnst þær koma vel út á arinhillunni.
Svo er líka svona kósý þegar rökkrið skellur á.
Sem sagt, algjör sæla með nýja kertaarininn okkar :-)
Svo væri gaman að fá smá "komment" frá ykkur kæru lesendur. Á góðum dögum koma tugir heimsókna á síðuna mína en kannski bara einn kvittar fyrir sig (og yfirleitt alltaf þeir sömu). Veit ekki hvort ég nenni að setja eitthvað hérna inn ef enginn hefur áhuga á að lesa blaðrið í mér ;-)
Góðar stundir !!
Edit 17.febrúar 2013 - Sé að það eru rosalega margir sem koma inn á þennan póst hjá mér og hef ég líka fengið nokkrar fyrirspurnir um arininn og hvar ég hefði fengið hann. Ég sá á Blandinu að það er uaðilar sem er að smíða svona kertaarna fyrir sanngjarnan pening. Notendanafn þeirra er grrkn, Bíll 27, heimförin, SaraBjort06.