Vildi bara sýna ykkur nýjasta djásnið í sumarbústaðnum, bláa skápinn okkar !
Þar sem allt er svo hvítt og ljós í bústaðnum okkar þá vantaði okkur einhvern lit í stofuna og skáp sem ekki væri of stór. Fann svo þennan fína furuskáp á blandinu á 20 þúsund og er eiginmaðurinn búinn að dunda sér við að taka hann allan í sundur og mála hann í þessum undurfagra antíkbláa lit (Lady HAVBLÅ (havbris 5351) frá Jötunn).
Skápurinn kemur ótrúlega vel út og erum við þvílíkt ánægð með hann.
Svo fengum við þessar fallegu hvítu höldur í Söstrene, koma vel út á bláum grunni.
Eigum eftir að finna einhverja fallega hluti í skápinn en ég færði nokkra hluti til fyrir myndatökuna í dag ;-)
Fallega englakertið sem ég bjó til.
Því miður á ég ekki mynd af skápnum fyrir breytingu þar sem við fengum hann í tveimur hlutum og svo var eiginmaðurinn búinn að rífa hann í sundur áður en ég náði að taka mynd af honum. En þið vitið hvernig svona furuskápar líta út :-)
Kemur hann ekki bara vel út ??
kveðja
Kristín