Jæja, brjálað veður í dag og ekkert annað að gera en að vera bara í kósý, heimabökuð rúnstykki í ofninum, kertaljós og dundur. Það styttist í páskana og því tilvalið að fara að huga að páskaföndri. Við mæðgur gerðum þessi egg um helgina og var rosalega gaman hjá okkur.
Til að lita eggin þarf bara vatn, edik og matarlit. Í einn bolla af vatni setti ég svona 1-2 tsk af edik og 1 tsk af matarlit. Fer bara eftir hvað þið viljið hafa sterkan lit.
Ég nennti nú ekkert að vera að blása úr eggjunum, ég bara sauð eggin vel og svo verðum þeim bara hent eftir páska ;-)
Svo er eggjunum dýft í litablönduna og svo fer bara eftir hvað þið viljið að liturinn sé mikill, hversu lengi eggin eru ofaní. Eggin mín voru fyrir minn smekk aðeins of lengi í litablöndunni og voru því of dökk. Vildi hafa þau frekar ljós, geri bara annan skammt bráðlega ;-)
Svo eru eggin lögð á plötu til að láta þau þorna.
Svo er bara að láta eggin njóta sín og bíða eftir páskunum og vorinu :-)
Góða skemmtun :-)
Svo er ég með önnur egg í bígerð sem eru enn á tilraunastigi, næ vonandi að sýna ykkur þau fljótlega.
......og svo megið þið alveg skilja eftir smá spor í gestabókinni ;-)
kveðja
Kristín Vald