Ein mynd af mörgum sem ég tók úti í dag, fleiri koma seinna :-)
Saturday, August 3, 2013
Wednesday, July 31, 2013
Kósý-róla
Þegar ég var lítil ólst ég upp með svona kósý-rólu í garðinum okkar. Í henni var maður öllum stundum, hvort sem það var sól eða skýjað. Ég man meira að segja eftir mér í henni í maí, undir teppi, lesandi undir próf !
Svo þegar ég eignast minn garð varð ég náttúrulega að eignast svona kósý-rólu og er þessi róla eitt mest notaða útihúsgagnið í garðinum.
Nú og svo eignuðumst við sumarbústað og þá urðum við náttúrulega að fá okkur kósý-rólu á pallinn okkar þar. En þá voru góð ráð dýr, hvergi fundum við góða garðrólu nema eina sem kostaði 130 þúsund takk fyrir.....aðeins of mikið fyrir okkar buddu ! Þá tók ástkær eiginmaður minn sig til að smíðaði eitt stykki (eða eiginlega tvö stykki) kósý-rólu handa frúnni :-) .....og hver veit nema hann taki að sér smá auka smíðavinnu fyrir áhugasama !!!
Rólan er nú komin í bústaðinn og í góða veðrinu í síðustu viku gerði ég hana extra fína og flotta og tók myndir af henni fyrir sumarblogg partýið hennar Stínu Sæm (Svo margt fallegt). Fullt af sumarlegum og fjölbreyttum sumarbloggpóstum þar, endilega kíkið á þá :-)
ahhhh.......hverjum langar ekki að liggja þarna og láta sig dreyma :-)
....lesa kannski góða bók eða skemmtilegt blað.....
Sólhlíf úr IKEA sem er hægt að festa á róluna til að fá skugga.
Þessum systrum finnst allavega voðalega kósý að slappa af í kósý-rólunni :-)
...og svo er nú smá áskorun til ykkar sem lesa bloggið mitt reglulega en kvitta aldrei; hvernig væri nú að skilja eftir smá spor í kommentunum !!! Ég veit þið getið það og það tekur ekki meira en mínútu......sem er tluvert minna en það sem fór í þessa færslu hjá mér ;-)
My husband made me this wonderful Porch Swing for our summerhouse :-)
Shared with: Favorite photo Friday
My husband made me this wonderful Porch Swing for our summerhouse :-)
Shared with: Favorite photo Friday
kveðja
Kristín
Thursday, July 25, 2013
Sól og sumar
Jæja, hún Stína Sæm bauð í sumar blogg partý og þá verður maður náttúrulega að vera með ! Það stefndi nú í að ég myndi nú barasta ekkert mæta en svo birtist bara þessi gula og þá verður allt svo fallegt :-)
Hentist út í dag með allskyns dót og dúllerý og útbjó fallegan krók í stóra garðinum okkar. Pallurinn okkar er er svo stór að það er ómögulegt að gera eitthvað kósý á honum þannig að ég notaði bara lítið svæði við hliðina á Kínakotinu okkar þar sem gróðurinn fær að njóta sín.
Leyfi myndunum að lýsa stemningunni :-)
Svo fengu dömurnar aðeins að hafa það kósý og lesa svoldið :-)
Þakka Stínu fyrir boðið og vona að þið hafið notið stundarinnar !
Wednesday, July 17, 2013
Meiri lúpínur
Litla snúllan fékk líka að fara í lúpínumyndatöku :-)
Monday, July 8, 2013
Rigningardagar...
Það hefur ekki farið framhjá neinum að sumarið í sumar hefur ekki alveg verið það besta. Ég var búin að sjá fram á yndislegt sumar eins og undanfarin ár með endalausum myndatökum. Stelpurnar í ermalausum kjólum, sól, blóm og rómantík. En þar sem það bara rignir og rignir þá verður maður bara að gera gott úr því og draga fram regnkápuna og regnhlífina og skunda út með myndavélina :-)
...og munið að það er ekkert til sem heitir slæmt veður....bara slæmur klæðnaður :-)
Pollýanna
Saturday, July 6, 2013
Sóleyjar...
Saturday, June 29, 2013
Lúpínur
Ég elska lúpínuna, þessa fallegu fjólubláu plöntu sem breiðir úr sér yfir holt og hæðir ! Það eru ekki allir sáttir við þessa plöntu og líkja henni við illgresi....en falleg er hún, því er ekki hægt að neita !
Stóra stelpan mín á afmæli í dag, er 9 ára ! Ég notaði því tækifærið í vikunni og tók afmælismyndir af henni í lúpínunni :-)
I just love the lupines, the beautiful purple plant. It´s my big girl´s birthday today (9) so I took her out for a lupine photoshoot last week :-)
Shared with: Favorite photo Friday, Sunday Snapshot
I just love the lupines, the beautiful purple plant. It´s my big girl´s birthday today (9) so I took her out for a lupine photoshoot last week :-)
Shared with: Favorite photo Friday, Sunday Snapshot
Sunday, June 23, 2013
Rómantískt sumar
Jæja, þá er ljósmyndadellan alveg að fara með kellu því í dag dröslaðist ég út með allskyns dót og dúllerí og stillti upp í rómantíska myndatöku af systrunum. Notaði þessa fínu himnasæng úr IKEA !
Systurnar alveg að verða þreyttar á þessu veseni á mömmu sinni.....hehe....en myndatakan tókst bara mjög vel :-)
Ég verð eins og lítill krakki á jólunum þegar ég er búin með svona myndatöku, að vita af myndavélinni fullri af góssi, henda kortinu í tölvuna og sjá dásemdina birtast á tölvuskjánum. Svo að bíða eftir að stelpurnar hendist í bólið svo ég geti átt ástarsamband við tölvuna mína, velja myndir og vinna þær í photoshop og lightroom....ekkert skemmtilegra :-)
Hér koma nokkrar myndir úr tökunni í dag:
Endilega látið svo heyra í ykkur, vil endilega fá álit ykkar.....hvort ég sé á réttri leið eða hvort ég eigi bara að halda þessu fyrir mig ;-)
kveðja
Kristín
I did a romantic shot with my girls today and it turned out pretty good :-) I used an IKEA bed canopy and hung it up in a tree in my garden.
Sunday, June 16, 2013
Sérstakt samband
Stóra stelpan mín er algjör hestastelpa og það sést vel á þessari yndislegu mynd :-)
We met this beautiful foal yesterday and my big girl was very happy because she loves horses.....and the foal was so cute and curious :-)
Shared with: Sunday snapshot
Wednesday, June 12, 2013
Afmælisstelpa :-)
Ég er búin að bíða í allan vetur og allt vor eftir góða sumarveðrinu til að taka fallegar útimyndir og nota linsuna mína sem ég fékk í desember. En nei nei.....sumarið ekki alveg á leiðinni. Ég náði samt nokkrum myndum eftir kvöldmat í gærkvöldi...svona rétt á milli skúra ;-) Mútaði snúllunni minni með ís þar sem mig langaði svo að taka af henni afmælismyndir því hún á 5 ára afmæli í dag.....jibbýýýýýý.
Myndatakan heppnaðist svona líka vel þó hún hafi ekki tekið nema um 15 mínútur.
...og svo er úrval af myndum úr tökunni....átti svoldið erfitt með að velja myndir !
Hérna er sniðugt forrit þar sem er hægt að gera svona myndasöfn (collage) eins og er hérna fyrir ofan. Einfalt og þægilegt og hægt að velja um fullt af möguleikum :-)
Vona að sumarið fari nú að koma með sól í hjarta og blóm í haga.
kveðja
Subscribe to:
Posts (Atom)

.jpg)
.jpg)
.jpg)


















.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)

.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
+(Medium).jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
