Saturday, December 5, 2015

December 5. Fireplace decoration


Eins og þið hafið tekið eftir þá er ég mjög hrifin af skógarþemanu, þ.e. lítil jólatré, snjór og lítil skógardýr.  Ég ákvað þó að "poppa" þemað aðeins upp á arninum mínum og bæta við smá retro bílum :) Er virkilega ánægð með hvernig til tókst :)



Stóra pallettu jólatréð útbjó eiginmaðurinn minn fyrir mig í fyrra og fer svo vel þarna á arninum. Þið getið lesið meira um það hér.


Litla bjallan fékk að fylgja mér heim frá Svíþjóð í september, akkúrat í þetta verkefni :) Litlu jólatréin eru úr Söstrene.  Viðarkubbarnir undir glerkúplunum eru úr garðinum, útbúnir af eiginmanninum !


Litli bambinn úr Toy´srus....svo mikið krútt :)


Svo fær aðventukransinn minn að njóta sín þarna í skógarævintýrinu :)


Þessi VW rúgbrauð er náttúrulega bara æði, pöntuðum það bara á herra Ali :)  









This is my fireplace decoration this year.  I really like the woodland feeling this year but I decided to add some retro Christmas cars to the theme :)

Hope you like it :)

Kristín Vald

Friday, December 4, 2015

December 4.

4.desember

Einfaldleikinn ræður ríkjum í dag, njótið dagsins kæru vinir :)


A simple life today my dear friends, enjoy :)

Kristín

Thursday, December 3, 2015

3.december, Heimalagað Baileys :)

Heimalagað Baileys......þarf ég að segja meira ??

 
Aðeins 6 hráefni og tekur innan við 5 mínútur að búa til...og svo gott á bragðið......þetta er bara of gott til að vera satt :)

 








Uppskriftin er svo hér:

Heimalagað Baileys

1 peli rjómi
1 dós niðursoðin mjólk (condenced milk - fæst í Asíubúðum t.d. við Hlemm og í Melabúðinni)
200 -400 ml Viskí (smekksatriði)
1 tsk skyndikaffi (duftið)
2 msk súkkulaði sýróp (t.d. Herseys)
1 tsk vanilludropar

Setið allt hráefnið í blandara og setjið á hæsta hraða í 30 sek.
Setjið á lokaðar flöskur og geymið í kæli.  Hristið fyrir notkun.

Geymist í kæli í um mánuð (ágætt að skrifa dags. á miðann)

Einfaldara er það ekki :)  ...og svo gott !!

Í uppskriftinni sem ég fann á netinu þá var helmingi meira af viskíi.  Þegar ég gerði fyrstu uppskrift þá fannst mér allt of mikið viskíbrað þannig að ég minnkaði það um helming.  Þannig að þegar þið gerið uppskriftina þá mæli ég með að þið byrjið á að setja minna viskí og svo bara bæta við eftir smekk :)

Ég notaði flöskur undan Froosh smoothie og bjó ég til miðana sjálf.  Ef þið viljið fá svona miða þá endilega sendið á mig póst (kristinvald@gmail.com) og ég sendi ykkur skjalið sem þið prentið svo út á A4 límmiða örk og klippið svo út :)

Ég gerði tvöfalda uppskrift og hún dugði á 6 flöskur !


Homemade Baileys

I'm talking only 6 ingredients and less than 5 minutes start to finish. No cooking, no dirtying tons of dishes, no problem.  After this, you will never buy Bailey's again!  It's so easy and makes perfect gifts. Who wouldn't want to receive this?  

Ingredients
·        1 cup light cream (I used heavy whipping cream, which made it even richer)
·        14 ounces sweetened condensed milk
·        1 2/3 cup Irish whiskey 
·        1 teaspoon instant coffee
·        2 tablespoons chocolate syrup
·        1 teaspoon vanilla

1.      Combine all ingredients in a blender and set on high speed for 30 seconds.
2.       Bottle in a tightly sealed container and refrigerate. Shake before using.

3.       Will keep for up to 1 month.

Enjoy

Kristín Vald

Wednesday, December 2, 2015

December 2. Christmas Wreath

 Í dag ætla ég að sýna ykkur smá föndur en það er hurðarkransinn minn í ár :)

Gerður úr mosa og skreyttur með litlum jólatrjám og litlum bamba.  Smá skógarfílingur í jólaskrautinu mínu í ár :)

Njótið !!







This is my Christmas Wreath this year, made from moss, some bottle brush trees and a little bambi :)  A woodland feeling this year !



All the best

Kristín

Tuesday, December 1, 2015

December 1. Christmas Calander :)

Jæja....loksins loksins er kominn 1.desember og nú hefst jóladagatalið mitt í þriðja skiptið.  Mun ég birta hér eina mynd eða myndasafn á hverjum degi til jóla :-) 

Ég er búin að vera dugleg í sumar og haust að undirbúa mig, safna fullt af hugmyndum, útfæra þær, safna propsi og taka myndir.  En þar sem maður býr á þessu blessaða, fallega skeri þá ræður maður ekki alltaf veðrinu og snjónum.  Var ég svo heppin að það kom snjór um síðustu helgi og gat ég því tekið nokkrar útimyndir.  Vonandi helst svo snjórinn svona fallegur í desember :)

Ég er búin að taka eitthvað af myndum en aðallega innimyndir og ýmsar uppstillingar.  Ég ætla að líka hafa í dagatalinu eitthvað föndur og nokkrar uppskriftir, allt í bland :)

Vonandi njótið þið og fáið að upplifa smá jólastemningu á aðventunni :)

Fyrsta myndin er af yngri snúllunni minni í snjónum um síðustu helgi.


Today my Christmas photo Calendar starts for the third year :) 

From today until the twenty fourth I´ll show one picture or picture collage here on my blog and my facebook page, pictures that bring out a warm, cosy Christmas feeling in my self and hopefully someone else :-)

I hope you´ll enjoy !

hugs
Kristín


Sunday, November 29, 2015

Advent candles

Í dag er fyrsti í aðventu og því við hæfi að sýna ykkur aðventukransinn minn í ár.  Ég er mjög hrifin af því að nýta hráefni úr náttúrunni og þá sérstaklega viðinn.

Þessi er úr ösp sem var felld í garðinum í sumar.  Svo voru gerð 4 göt fyrir kertin.  Hann er fallegur einn og sér en ég vildi skreyta hann aðeins og setti því smá gervisnjó, lítil tré úr Söstrene og lítinn sætan bamba (úr Toys´r us) og kemur það bara vel út :)

Minni svo á jólamyndadagatalið mitt sem byrjar á þriðjudaginn :)




This is my advent candles this year.  I just love using natural material and something you can collect in your garden...and that is what I did :)

And my Christmas calendar starts on Tuesday so stay tuned :)

Kristín

Tuesday, November 24, 2015

My Christmas video


Jólamyndadagatalið mitt hefst 1.desember 
smile emotico
 Er búin að búa til lítið myndband fyrir ykkur með nokkrum myndum úr jólamyndadagalinu mínu 2014 svo þið vitið á hverju þið eigið von á í ár 
smile emoticon
 Þetta er fyrir ykkur jólabörnin þarna úti 
smile emoticon






My Christmas photo Calender begins Desember first. This is a little video from my last 
year´s Calander. 


Enjoy 
smile emoticon

Tuesday, November 17, 2015

Advent candles

Nú styttist í fyrsta í aðventu og ekki seinna vænna að fara að hugsa um hvernig aðventukransinn er í ár.  Hérna koma 3 kransar sem ég hef gert.




...og hér koma svo nokkrar hugmyndir sem ég fann á ferð minni um Pinterest :)




















Some examples of Advent Candles for the Advent.  The first three are from me and the rest is from Pinterest :)

Kristín